Bíddu þekki ég þig? Já en það eru nýbúin að vera mánaðarmót!

Þú ert að fara á djammið.. Kjörið tækifæri fyrir þig til að vera einhver allt önnur manneskja! Svakalegt djamm framundan og öll vikan fer í að plana það.  það eru nýbúin að vera mánaðarmót þannig að þú hefur efni á að eyða smá pening í að vera einhver allt önnur.. 

Þú ert búin að vera að standa í því að lita hárið á þér platínum hvítt í nokkra mánuði og loksins tókst það! DAMN.. núna er það of þunnt, Jæja það eru nýbúin að vera mánaðarmót.. Ég skelli mér bara á hárlengingar, fínt þessar nýju með klemmunum... OKEY núna er hárið fínt! Enn allt hitt eftir! TANIÐ sjitt hvar er tanið... úff.. Skellir sér á sæluna í 4 daga í röð í 12 mínútur hvert skipti, samt ekki orðin nógu brún og hvað er þá til ráða..? Hmm.. skella sér bara í brúnkumeðferð líka!! FLOTT núna er ég súkkulaði brún..

Augun, æji mig langar í brún augu ekki græn! Æji það eru hvort sem er nýbúin að vera mánaðarmót, skelli mér uppí gleraugnabúð og kaupi brúnar litalinsur FLOTT..!! Láta vaxa allan líkamann því að auðvitað er ekki vel séð ef kvöldið endar einhverstaðar annarstaðar en heima að maður sé með eitt einasta líkamshár!

Best að kaupa aðhaldsundirföt, svona til að vera viss um að það sjáist ekkert utan á mér.. Er auðvitað búin að velja svo svakalega þröngan, fleginn og stuttan kjól! FLEGINN.. ÚPS.. Verð að kaupa nýjan brjóstahaldra, PUSH UP!!!!

Sem betur fer var ég búin að fara í tannhvíttun í síðasta mánuði.. þetta er nefnilega orðið svolítið dýrt...

Dýrt, DAMN mig vantar nýtt meik og nýjan Maskara! Æji það eru nýbúin að vera mánaðarmót, skelli mér á þetta líka ;)

Áfengi.. hmm freyðivín og breezer bara! Partý heima hjá Gunnu í kvöld!! ;)

Okey gera sig til... Skellt sér í push up brjóstarhaldarann, aðhaldsnærfötin, nýþrönga kjólin, 12 cm hælaskónna, skellt í litalinsunum, hárlenginum, smoky makeup með gerviaugnahárum og MIKLUM maskara! BLEIKUR varalitur! sólarpúður... Taka nokkrar myndir stelpur BROSA!!! Skella í sig áfenginu..!

Fara niður í bæ.. Hittir nokkra vini þína sem segja "bíddu þekki ég þig" ... Skemmtir þér ótrúlega vel, hittir sætan strák og ferð með honum heim!

Daginn eftir vaknar strákurinn á undan þér... Skilur ekkert i því afhverju hvítu sængurfötin hans eru húðlituð.. Sér hárlokka á náttborðinu og hugsar með sér hvað sé í gangi!! Skoðar betur.. Sér þar líka augnahár!! FOKK hvað gerðist í gær?? Fer fram og fær sér vatn.. þar kemur skvísan svo fram nakin tilbúin í næsta round.. Gaurinn fær taugaáfall!! Hárið þunnt og stutt, húðin flekkótt, eitt augað brúnt hitt grænt, Brjóstin engin, allavega komin 10 auka kíló á hana og hún er 12 cm minni...!! sér svo að skilríkin hennar eru á eldhúsborðinu.. Þau eru fölsuð.. 92 módel ekki 87!!!

Hann spyr "bíddu þekki ég þig?? Já ég kom heim með þér í nótt ;) Hann neitar því, "þú ert ekki sama stelpan og ég hitti í gær" Jú það eru bara nýbúin að vera mánaðarmót ;) ;)  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HAhahahaha :) Pottþétt einhverjir gaurarnir sem lenda í þessu :)

Sirrý (IP-tala skráð) 28.3.2011 kl. 18:34

2 Smámynd: Bjarney Vigdís Ingimundardóttir

Haha já ábyggilega nokkuð margir ;)

Bjarney Vigdís Ingimundardóttir, 28.3.2011 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband